Skötuveisla hestamannafélagsins Spretts fer fram á Þorláksmessu frá klukkan 11:30-14:00 í veislusal Spretts í Samskipahöllinni. Verð er 6900kr. Boðið verður upp á kæsta skötu, tindabikkju, saltfisk, kartöflur, rófur, rúgbrauð, hamsatólg og íslenskt brauð. Einnig verður hægt að kaupa fljótandi veitingar.
Veislustjóri verður Gunnar Gunnsteinsson og ljúfir tónar verða spilaðir af Pálma Sigurhjartarsyni. Ræðumaður verður enginn annar en Hermann Árnason hestamaður og vatnagarpur. Hermann hefur farið í ófáar hestaferðirnar sem hann mun án efa segja frá með skemmtilegum hætti.
Það verður söngur og gleði, góður matur og frábær félagsskapur. Skötuveislan er um leið fjáröflun fyrir hestamannafélagið Sprett. Takmarkaður sætafjöldi er í boði og fara borðapantanir fram á sp******@******ur.is
