Ráðning framkvæmdastjóra Spretts

Stjórn Spretts hefur ráðið Berglindi Guðmundsdóttur í fullt starf sem framkvæmdastjóra Spretts. 

Berglind hefur stundað hestamennsku í mörg  ár, í dag heldur hún hesta á Hamraenda. Berglind  er menntaður viðskiptafræðingur með meistaragráðu í fjárfestingastjórnun. Á árunum 2015-2017 sat Berglind í stjórn Spretts, var gjaldkeri félagsins og þekkir því vel til rekstursins. Auk þess þá hefur Berglind sinnt fjölbreyttum sjálfboðaliðastörfum fyrir Sprett en í dag er Berglind í æskulýðsnefnd félagsins. 

Berglind hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans síðan haustið 2006 þar sem hún hefur komið að greiningu og stýringu verkefna, verið tengiliður við viðskiptavini og verktaka og komið að samningagerð í tengslum við þau samskipti.  Hún sat í réttindanefnd Landsamtaka lífeyrissjóða og fulltrúaráði VIRK, sinnt gæða- og umbótamálum, komið að þróun og útfærslu tölvukerfa og rafrænna lausna fyrir lífeyrissjóði í rekstri bankans og komið að skipulagningu og undirbúningi ársfunda þeirra svo eitthvað sé nefnt. 

Margar góðar umsóknir bárust í starfið og var það ánægjuleg staða fyrir stjórn að hafa úr fjölbreyttum og hæfum umsækjendum að velja. 

Á næstu dögum mun skýrast hvenær Berglind getur hafið störf fyrir Sprett og hvetjum við alla Sprettara og aðra hestamenn til að taka vel á móti henni.

Kveðja Stjórn Spretts

Scroll to Top