Skip to content

Pollanámskeið í stóra gerðinu við Magnúsarlund!

Kæru Sprettarar, á morgun, laugardaginn 13.apríl milli kl.10-13 verður kennsla í stóra gerðinu við Magnúsarlund. Þar verða okkar yngstu knapar í kennslu, pollanámskeið Spretts, undir handleiðslu Hrafnhildar Blöndahl.

Gerðið verður því upptekið frá kl.10-13.
Við biðjum ykkur um að taka tillit þegar riðið er framhjá og fara rólega framhjá.

Með fyrirfram þökk,
Þórdís og Hrafnhildur.