Skip to content

Pollanámskeið 2025

Frábæru pollanámskeiðin hjá Hrafnhildi Blöndahl hefjast laugardaginn 25.janúar. Kennt verður í Húsasmiðjuhöllinni, 40mín hver tími, samtals 6 skipti. Síðasti tíminn laugardaginn 1mars.Tímasetningar í boði á milli kl.10-13.

Nokkrir hópar í boði:
– byrjendur og minna vanir yngri knapar (knapar sem eru teymdir og fara mest fet en einnig aðeins upp á gang)
– minna vanir eldri knapar (stjórna sjálf, fara mest fet en líka aðeins upp á gang)
– meira vanir allur aldur (ríða sjálf, fet tölt brokk)
– mjög mikið vön (ríða sjálf, fet tölt brokk stökk)

Námskeiðin eru niðurgreidd af Æskulýðsnefnd Spretts, hvetjum við alla polla til að skrá sig. Mikið stuð og mikið gaman! Verð er 5000kr.

Skráning fer fram á sportabler.com/shop/hfsprettur og hefst kl.12:00 mánudaginn 6.janúar.