Pollafimi er námskeið fyrir yngstu knapana þar sem verður lögð áhersla á jafnvægi og ásetu með skemmtilegum æfingum meðan þeir eru hringteymdir. Sniðugt er fyrir 2 litla knapa að sameinast um einn hest. Það sem þarf er hestur, hnakkur eða gjörð með handföngum, snúrumúll eða hringtaumsmúll og vaður/langur taumur.
Kennt verður á laugardögum í Húsasmiðjuhöll (28.nóv., 5.des., 12.des. og 19.des.) Tímar í boði milli kl.11-13.
Hver tími er í 30mín og eru 4 saman í hóp. Samtals 4 skipti. Fyrsti tíminn er laugardaginn 28.nóv. Síðasti tíminn er 19.des. Verð er 7000kr. Skráning er opin í abler.
Kennari er Hrafnhildur Blöndahl, leiðbeinandi og tamningakona.
