Skip to content

Pollafimi

Pollafimi er námskeið fyrir yngstu knapana þar sem verður lögð áhersla á jafnvægi og ásetu með skemmtilegum æfingum meðan þeir eru hringteymdir. Sniðugt er fyrir 2 litla knapa að sameinast um einn hest. Það sem þarf er hestur, hnakkur eða gjörð með handföngum, snúrumúll eða hringtaumsmúll og vaður/langur taumur. 

Kennt verður á miðvikudögum í Húsasmiðjuhöll. Hver tími er í 30mín og eru 4 saman í hóp. Samtals 4 skipti. Fyrsti tíminn er miðvikudaginn 20.nóv. Síðasti tíminn er 11.des. Tímasetningar í boði á milli kl.16:00-18:30. Verð er 5500kr.

Kennari er Hrafnhildur Blöndahl, leiðbeinandi og tamningakona. 

Skráning fer fram á sportabler.com. Hér er hlekkur á skráningu:
https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzQ2NzQ=