Pollaatriði á Æskan & Hesturinn 2026

Sýningin Æskan og hesturinn verður haldin sunnudaginn 26. apríl næstkomandi í nýrri og glæsilegri reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Sýningin hefst kl. 14:00. Frítt er inn á sýninguna á meðan húsrúm leyfir.

Sameiginlegt atriði hestamannafélaganna á höfuðborgarsvæðinu verður fyrir alla polla (en skipt upp í holl ef fjöldi er mikill) á aldrinum, 4-9 ára (árið sem gildir, 2022-2017). Við hvetjum alla yngstu Sprettarana til að mæta og taka þátt í pollaatriðinu, gaman er að mæta í fallegum búning, bæði hestur og knapi.

Skráning í polla atriðið er opin á bler.io/shop/hfsprettur og lýkur á miðnætti miðvikudaginn 22.apríl.

Scroll to Top