Perlað af Krafti með Sprett

Í tilefni af Metamóti Spretts leggur

Kraftur leið sína í Kópavoginn og perlar með Spretti og

laugardaginn 7.september frá kl. 13 til 16 í Samskipahöllinni.

Með því að taka þátt í viðburðinum eru þið að hjálpa

okkur að standa við bakið á ungu fólki sem greinst

hefur með krabbamein og aðstandendum þess þar

sem armböndin eru seld til styrkar félaginu.

Armböndin sem um ræðir eru svört og metal lituð.

Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru

auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt,

börn sem fullorðnir.

Við hvetjum alla Spretts félaga og aðra áhugasama að

taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll

armböndin eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil

hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu

armbandanna rennur til Krafts – stuðningsfélag fyrir

ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og

aðstandendur og er hægt að kaupa armböndin líka

strax á staðnum ásamt öðrum varning merktum Lífið

er núna.

Þetta er skemmtileg stund fyrir alla fjölskylduna og

tilvalið tækifæri að láta gott af sér leiða og að

sjálfsögðu verður heitt á könnunni!

KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI ♥

Perlað af Kraft 2019
Scroll to Top