Panta tíma í reiðhöllum Spretts

Bókun á reiðhöllum Spretts

Bókanir á einkatímum í reiðhöllum Spretts fer fram með því að fylla út formið hér að neðan.
Í boði er að bóka lausa tíma:
Öll Húsasmiðjuhöll
Eitt hólf í Samskipahöll
Alla Samskipahöllina virka daga milli kl.6-9 á morgnanna og milli kl.22-00 á kvöldin
Alla Samskipahöllina um helgar milli kl.6-9 á morgnanna og kl.20-00 á kvöldin

Hægt er að bóka í lágmark klukkustund alla Samskipahölllin en Húsasmiðjuhöll og hólf í Samskipahöll í hálftíma.

Bóka verður tíma í reiðhöllum með lágmarks tveggja virkra daga fyrirvara.

Ein klukkustund í einu hólfi í Samskipahöllinni kostar 8.000 kr.
Ein klukkustund í allri Húsasmiðjuhöllinni kostar 10.000 kr.
Ein klukkustund í allri Samskipahöllinni kostar 30.000 kr

Ofangreind verð eiga einungis við fyrir hestatengda viðburði. Ef fólk ætlar að fá til sín kennara í einkatíma verður fólk að leigja sér pláss óheimilt er að vera með reiðkennara með sér á opnum almennum tíma reiðhallanna.

Scroll to Top