Skip to content

Opna Blue Lagoon mótaröðin – skráning í tölt

Skráning er hafin á þriðja mótið í Blue Lagoon mótaröð Spretts, Tölt.Mótið verður haldið laugardaginn 12.mars í Samskipahöllinni í Spretti og verða eftirfarandi flokkar í boði:

Pollaflokkur (6-9 ára sem ríða sjálfir)
Barnaflokkur minna vanir (10-13 ára)
Barnaflokkur meira vanir (10-13 ára)
Unglingaflokkur (14-17 ára)

Sex skráningar þarf í hvern flokk svo að boðið sé upp á hann. Blue Lagoon nefndin áskilur sér rétt á að sameina flokka ef ekki næst nægur fjöldi í einhverja flokka.

Keppendur sýna:
Pollaflokkur – hægt tölt og frjáls hraði, ekki snúið við. Knapar frá umsögn frá dómurum að sýningum loknum en ekki verður raðað í sæti í þessum flokki.
Barnaflokkur minna vön – T7 (hægt tölt, snúið við, frjáls hraði)
Barnaflokkur meira vön – T3 (hægt tölt, snúið við, hraðabreytingar og greitt tölt)
Unglingaflokkur – T3

Skráningin fer fram í gengum Sportfeng og eru skráningargjöld eftirfarandi:
2500 kr. fyrir barna- og unglingaflokk
1000 kr. fyrir pollaflokk

Skráning er opin til miðvikudagsins 9.mars.
Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni laugardaginn 12.mars.

Minnum á opnu innanhús gæðingakeppnina sem verður haldinn laugardaginn 25. mars í Samskipahöllinni.

Dagsetningar Blue Lagoon mótaraðarinnar eru eftirfarandi:
18. febrúar – fjórgangur (LOKIÐ)
26. febrúar – fimmgangur og T2 (LOKIÐ)
12. mars – tölt
25. mars – gæðingakeppni

-Blue Lagoon nefndin