Opið þrígangsmót Spretts

Hestamannafélagið Sprettur heldur opið þrígangsmót í Samskipahöllinni í Spretti föstudaginn 29. Mars 2019.

Skráning er hafin og stendur til miðnættis þriðjudaginn 26. mars. Skráning fer fram inná sportfengur.com.

Boðið verður uppá keppni í fjórum flokkum:
17 ára og yngri
Minna vanir
Meira vanir
Opinn flokkur

í sportfeng er skráð í flokkana á eftirfarandi hátt:
17 ára og yngri – opinn flokkur 3.flokkkur
Minna vanir – opinn flokkur 2. flokkur
Meira vanir – opinn flokkur 1. flokkur
Opinn flokkur – opinn flokkur

Sýna á fegurðartölt, brokk og stökk.
Það komast 6 í úrslit í hverjum flokki.
Mótið byrjar í fyrsta lagi kl. 17 en endanleg dagskrá og tímasetnignar liggja fyrir að lokinni skráningu.

Skráningargjaldið er 3500 kr. á hest.