Opið íþróttamót Sprett verður haldið daganna 22. -24. maí á Samskipavelli Spretts.
Samkvæmt Sigga Stormi kemur sumarið 21. maí, því er spáð góðu veðri.
Opnað hefur verið fyrir skráningar á Sportfeng. Skráning í barna- og unglingaflokki er 6500 kr. og í öðrum flokkum 8000 kr. út laugardaginn 16. maí. Skráningargjöld hækka í 15.000 kr. fyrir skráningar 17. og 18. maí í öllum flokkum.
Fyrirspurnir skal senda á mot(hja)sprettur.is
Sprettur áskilur sér rétt að fella niður flokka þar sem ekki eru fleiri en sex keppendur skráðir.
Keppt verður í
T7: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur og 1. flokkur
T3: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
T1: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
T4: Unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
T2: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
V5: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur og 2. flokkur
V2: Barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
V1: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
F2: Unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og meistaraflokkur
F1: Ungmennaflokkur og meistaraflokkur
Gæðingaskeið: Ungmennaflokkur, 1.flokkur og meistaraflokkur
100 m skeið: Ungmennaflokkur og opinn flokkur
