Skip to content

opið æfingamót í gæðingalist

Haldið verður opið æfingamót í gæðingalist laugardaginn 18. mars nk. í Samskipahöllinni í Spretti. Stefnt er að byrja keppni um kl.14:30 eða 15:00 á laugardegi, fer eftir fjölda skráninga.

Mótið er æfingamót, það verða tveir virkir gæðingalistar dómarar sem gefa einkunnir og umsögn sem keppendur fá svo sent til sín í tölvupósti. Engin úrslit riðin, bara forkeppni.

Hægt er að skrá til keppni í öllum flokkum – fullorðinsflokk, ungmennaflokk, unglingaflokk og barnaflokk. Miðað er við 2.stig gæðingalistar.

ATH! nauðsynlegt er að senda inn eyðublað með æfingum í síðasta lagi föstudaginn 17.mars kl.22:00 á fraedslunefnd@sprettarar.is. Eyðublaðið er að finna hér fyrir neðan og á fb viðburði mótsins.

Mótið er opið öllum og er frábært tækifæri til þess að prófa sig áfram í þessari spennandi keppnisgrein.

Skráning fer fram á sportfengur.com og er opin til miðnættis á föstudag. Skráningargjald er 2500kr.

Ráslistar og dagskrá birtast á laugardagsmorgun í LH kappa. Áætlað er að keppni hefjist um 14:30 eða 15:00 á laugardag. Nánari upplýsingar á fraedslunefnd@sprettarar.is