Skip to content

Nýmóts Þrígangur opið mót í Spretti

Hestamannafélagið Sprettur heldur opið þrígangsmót í Samskipahöllinni í Spretti föstudaginn 11. mars 2022, Nýmót styrkir mótið.

Skráning er hafin og stendur til miðnættis þriðjudaginn 8. mars.

Skráning fer fram inn á sportfengur.com.

Boðið verður uppá keppni í fimm flokkum í fegurðartölti, brokki og stökki: V6
13 ára og yngri
14 – 17 ára
Minna vanir
Meira vanir
Opinn flokkur

Boðið verður uppá keppni í fjórum flokkum í fegurðartölti, brokki og skeiði: F2
17 ára og yngri
Minna vanir
Meira vanir
Opinn flokkur

Sýndir eru 3 sprettir en 2 bestu gilda

Í sportfeng er skráð í flokkana á eftirfarandi hátt: 
13 ára og yngri – barnaflokkur
17 ára og yngri – fullorðinsflokkur 3.flokkur
Minna vanir – fullorðinsflokkur 2. flokkur
Meira vanir – fullorðinsflokkur 1. flokkur
Opinn flokkur – fullorðinsflokkur

Það komast 6 í úrslit í hverjum flokki.

Skráningargjöld í barnaflokk er 3000 kr og fyrir hina flokkana 3500 kr
Við auglýsum síðar þegar skráning liggur fyrir hvenær mótið byrjar.