Ný námskeið að hefjast!
Á næstu dögum verða hér auglýst ný námskeið sem hefjast í lok febrúar og byrjun mars. Fylgist vel með á heimasíðu Spretts, sprettur.is undir flipanum námskeið. Öll skráning á námskeið fer fram á abler.io/shop/hfsprettur
Reiðnámskeið með Róberti Petersen
Reiðkennarinn Róbert Petersen býður upp á einka – og paratíma í Samskipahöllinni. Kennslan er sérsniðin að þörfum og óskum hvers og eins nemanda og hesti.
Kennt verður á þriðjudögum í Samskipahöllinni. Kennsla hefst þriðjudaginn 24.febrúar og eru tímasetningar í boði milli kl.16-20. Kennt er í 40mín í einkatíma og 60mín í paratíma
Kennslu lýkur 31.mars, samtals 6 skipti.
Verð er 67.000kr fyrir einkatíma.
Verð er 53.500kr fyrir paratíma.
Skráning opnar þriðjudaginn 17.febrúar kl.12:00. Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur
