Skráning hefur aldrei verið meiri – Blue Lagoon mótaröðin 2025 – fjórgangur BLUE LAGOON mótaröð Spretts fór af stað 18 febrúar síðastliðin. Mótaröðin hófst á fjórgangi og voru sýningar unga fólksins glæsilegar! Krakkarnir eru greinilega í keppnisgír því skráningar voru rúmlega 124 talsins og hefur aldeilis bæst við skráningar síðan í fyrra, barnaflokkarnir fylltust strax og verður tekin staðan fyrir næsta tímabil að hækka takmörkin í þá flokka. BLUE LAGOON mótaröðin er orðin ein vinsælasta og stærsta mótaröðin sem haldin er. Vert að minnast þess að skipulagning og framkvæmd mótaraðarinnar er unnin af sjálfboðaliðum innan Spretts. Sem fyrr er BLUE LAGOON bakhjarl keppninnar og styður þannig við bakið á æskulýðsstarfi hestaíþróttarinnar með myndarlegum hætti. Þökkum við þeim kærlega fyrir stuðninginn. Verðlaun kvöldsins voru frá Líflandi, Josera, Sign og fleiri flottum fyrirtækjum og þökkum við þeim fyrir þau.
Sjálfboðaliða happdrætti var dregið og voru vinningar frá Noma og Líflandi.
Eiðfaxi TV var með beinar útsendingar í opinni dagskrá sem er orðið ansi vinsælt hjá aðstandendum og gaman fyrir þá sem eiga ekki heiman gengt í höllina að horfa á börnin, unglingana og ungmennin heima í stofu.
Úrslitin fóru svo að í V5 barnaflokki fóru svo að Jökull Myrkvi Haraldsson og Smyrill frá Vorsabæ II unnu með einkunina 6,12
1 Jökull Myrkvi Haraldsson Smyrill frá Vorsabæ II Brúnn/dökk/sv.stjörnótt Hörður 6,12
2 Móeiður Valgarðsdóttir Heljar frá Fákshólum Brúnn/milli-einlitt Sörli 6,04
3-4 Eva Hrönn Ásmundsdóttir Theódór frá Dalsholti Rauður/milli-blesótt Geysir 5,83
3-4 Embla Sirén Matthíasdóttir Sveindís frá Auðsholtshjáleigu Brúnn/milli-einlitt Fákur 5,83
5 Harpa Rún Sveinbjörnsdóttir Gyllir frá Oddgeirshólum Leirljós/Hvítur/dökk-tvístjörnótt Sprettur 5,33
6 Nadía Líf Kazberuk Sigurey frá Flekkudal Jarpur/rauð-einlitt Hörður 4,92
Úrslit í V2 barnaflokki fóru svo að Hrafnar Freyr Leósson á Meyvant frá Álfhólum unnu með einkunina 6.40
1 Hrafnar Freyr Leósson Meyvant frá Álfhólum Vindóttur/mós-, móálótt-einlitt Fákur 6,40
2 Svala Björk Hlynsdóttir Sigur frá Auðsholtshjáleigu Jarpur/milli-stjörnótt Fákur 6,23
3 Helga Rún Sigurðardóttir Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi Bleikur/fífil-blesa auk leista eða sokka Fákur 6,13
4 Oliver Sirén Matthíasson Öfgi frá Káratanga Brúnn/milli-einlitt Fákur 5,97
5 Aron Einar Ólafsson Rún frá Sumarliðabæ 2 Jarpur/milli-einlitt Geysir 5,87
6 Sigrún Freyja Einarsdóttir Silfurtoppur frá Kópavogi Vindóttur/móeinlitt Sleipnir 4,73
Í V5 unglingaflokki voru það þær Júlía Marín Jónsdóttir og Gloría frá Meðalfelli sem stóðu efst eftir úrslitin með einkunina 5.71
1 Júlía Marín Jónsdóttir Gloría frá Meðalfelli Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Adam 5,71
2-3 Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir Fegurð frá Skíðbakka III Brúnn/mó-einlitt Sprettur 5,62
2-3 Eva Dalrós Haraldsdóttir Alfa frá Árbæjarhjáleigu II Rauður/milli-stjörnóttglófext Fákur 5,62
4 Lilja Berg Sigurðardóttir Haukur frá Bergi Jarpur/rauð-einlitt Sprettur 5,58
5 Björney Anna Aronsdóttir Hljómur frá Borgarlandi Bleikur/álóttureinlitt Fákur 5,54
6 Hrafndís Alda Jensdóttir Dagnýr frá Dalbæ Rauður/milli-stjörnótt Sörli 5,29
Í unglingaflokki voru það þær Emma Rún Arnarsdóttir og Gletta frá Eystra-Fróðholti og Erla Rán Róbertsdóttir á Fjalari Frá Litla-Garði sem voru jafnar en eftir dómararöðum hafði Emma Rún betur og fékk 1 sætið.
1-2 Emma Rún Arnardóttir Gletta frá Eystra-Fróðholti Brúnn/milli-einlitt Sleipnir 6,13
1-2 Erla Rán Róbertsdóttir Fjalar frá Litla-Garði Jarpur/milli-einlitt Sörli 6,13
3 Íris Thelma Halldórsdóttir Runi frá Reykjavík Rauður/milli-stjörnótt Sprettur 6,07
4 Hjördís Antonía Andradóttir Ágúst frá Oddhóli Brúnn/milli-einlitt Sörli 6,00
5 Bertha Liv Bergstað Nátthrafn frá Kjarrhólum Moldóttur/d./draugeinlitt Fákur 5,97
Seinustu úrslit kvöldsins voru V2 ungmennaflokki stóðu Sigurbjörg Helgadóttir og Skuggabaldur frá Stórhólma uppi sem sigurvegarar með einkunina 6.70
1 Sigurbjörg Helgadóttir Skuggabaldur frá Stórhólma Brúnn/mó-einlitt Fákur 6,70
2 Anika Hrund Ómarsdóttir Dáðhugi frá Álfhólum Rauður/milli-einlitt Sprettur 6,30
3 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Muninn frá Bergi Brúnn/milli-einlitt Sprettur 6,13
4 Milla Logan Seifur frá Brekkubæ Brúnn/mó-einlitt Fákur 6,03
5 Snæfríður Ásta Jónasdóttir Feykir frá Strandarhöfði Rauður/milli-einlitt Sörli 6,00
6 Tristan Logi Lavender Svarthöfði frá Efri-Skálateigi 1 Brúnn/milli-einlitt Sleipnir 5,87
7 Díana Ösp Káradóttir Kappi frá Sámsstöðum Jarpur/milli-einlitt Brimfaxi 1,20
Blue Lagoon nefndin þakkar fyrir stundvísi og flottar sýningar og hlökkum til að sjá ykkur á næsta móti sem verður 4 mars og verður keppt í fimmgangi.
Við minnum á að það eru takmörk í alla flokkana og það er fyrstur kemur fyrstur skráir. Við munum ekki bæta við fleiri plássum í flokkana fyrir komandi mót. Skráning opnar fyrir fimmganginn mánudaginn 23. febrúar.
