Þann 8. júní síðastliðinn komu 6. bekkingar Kársnesskóla í heimsókn í Sprett þar sem Hrafnhildur Blöndahl sá um stutta kynningu á íslenska hestinum og hestamennsku á meðan þau nutu bakkelsis í boði Lindabakarís og drykks (Klaka) frá Gosfélaginu.
Nokkrir ungir Sprettarar sýndu gestunum síðan gangtegundir hestsins sem og léttar reiðæfingar og kjölfarið fengu allir að fara á hestbak sem sló heldur betur í gegn. Mikil ánægja var hjá börnum með heimsóknina og þakklæti frá Kársnesskóla fyrir móttökurnar.
Einnig bera að þakka sérstaklega þeim Spretturum sem gáfu sér tíma í þetta verkefni, fræddu, sýndu, teymdu undir og lánuðu hesta sína. Svona verkefni er afar gefandi og auglýsir okkar góða starf. Einnig skapar þetta jákvæða ímynd félagsins út á við og ýtir undir nýliðun.




