Núna á næstu dögum verða kynnt þau námskeið sem verða í boði mars og apríl. Endilega fylgist vel með en mikill áhugi hefur verið á námskeiðum félagsins undanfarið. Að gefnu tilefni viljum við minna á að á öll þau námskeið sem hestamannafélagið Sprettur stendur fyrir, og auglýsir eingöngu á sínum eigin miðlum, ganga skuldlausir félagsmenn fyrir. Ef fullt er á námskeiðið hvetjum við félagsmenn til að skrá sig á biðlista, því það getur verið að pláss losni og einnig gefur það yfirþjálfara og umsjónarmanni námskeiða meiri upplýsingar um eftirspurn – og þá er jafnvel hægt að bæta við tímum/námskeiðum.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir námskeiðin sem verða í boði, nánari auglýsing á hverju og einu birtist á næstu dögum. Minnum á að skráning er opin fyrir fyrirlestraröð ungra Sprettara sem er í gangi. Næsti fyrirlestur er föstudaginn 27.mars kl.16-17. Hreiðar Haraldsson. Afrekshugarfar – hvað einkennir hugarfar frammúrskarandi einstaklinga. Fyrirlestraröðin er ókeypis fyrir unga Sprettara en nauðsynlegt er að skrá sig.
Einkatímar hjá Randi Holaker reiðkennara og dómara. Hefst 12.mars. 6 skipti. Kennt á fimmtudögum milli kl.14-19. Skráning opnar sunnudaginn 8.mars kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur
Sýningarhópur – ungir Sprettarar. Hefst mánudaginn 9.mars. 6 skipti. Kennt á mánudögum. Skráning opnar sunnudaginn 8.mars kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur
Pollanámskeið með Hrafnhildi Blöndahl tamningakonu og leiðbeinanda. Hefst 28.mars. Kennt á laugardögum. Skráning opnar mánudaginn 9.mars kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur
Pollafimi með Hrafnhildi Blöndahl tamningakonu og leiðbeinanda. Kennt á mánudögum. Hefst 16.mars. 3 skipti. Skráning opnar mánudaginn 9.mars kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur
Paratímar hjá Sigrún Sigurðardóttur reiðkennara. Hefst 16.mars. 6 skipti. Kennt á mánudögum milli kl.15:00 og 18:30. Skráning opnar mánudaginn 9.mars kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur
Einkatímar hjá Árnýju Oddbjörgu reiðkennara. Hefst 18.mars. 4 skipti. Kennt á miðvikudögum milli kl.15 og 19. Skráning opnar mánudaginn 9.mars kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur
Undirbúningur fyrir keppni – ungir Sprettarar. Einkatímar hjá Ylfu Guðrúnu reiðkennara. Hefst 17.mars. Kennt á þriðjudögum milli kl.15:30 og 19.30. Skráning opnar mánudaginn 9.mars kl.12:00 á abler.io/shop/hfsprettur
Keppnisnámskeið – ungir Sprettarar hjá Arnari Mána. Hefst eftir páska.
Einkatímar Anton Páll. 6 apríl og 23.apríl.
Páskabingó ungir Sprettarar, ódagsett, nánar auglýst síðar.
Páskaeggjaleit ungir Sprettarar, ódagsett, nánar auglýst síðar.
Og fleira!
Hvetjum félagsmenn til að senda inn tillögur að námskeiðum og hugmyndum á thordis(hja)sprettur.is
