Skráning er í fullum gangi en við minnum á að skráningarfrestur til miðnættis sunnudagsins 28 júni.
Skráning er á www.sportfengur.com
Stofnuð hafa verið tvö mót í Sportfeng. Eitt fyrir fullorðna og ungmenni og annað fyrir börn og unglinga. Þetta er gert til að einfalda vinnu í Kappa – biðjum þá sem skrá sig að hafa það í huga.
Skráningagjald er kr. 4500 fyrir barna-, unglinga- og ungmennaflokka, kr. 6500 fyrir fullorðinsflokkana og kappskeiðgreinar kr. 4.000,-
Skráning er staðfest með greiðslu – annað ekki tekið til greina.
Hægt er að skrá til miðnættis 1 júlí en þá hækkar skráningargjaldið um kr. 2000 á hverja grein.
Allar frekar upplýsingar um skráningu fást með að senda tölvupóst á is********@sp********.is
Keppendur athugið að það er einn keppandi inná vellinum í einu nema í fjórgang barnaflokki en þá verða 3 inná í einu og riðið eftir þul.
Öll aðstaða er til staðar á Sprettssvæðinu og hesthús í boði. Allar nánari upplýsingar um hesthúsapláss fást hjá framkvæmdastjóra Spretts Magga Ben.
Við hvetjum knapa til að fylgjast vel með upplýsingum á heimasíðu Spretts, á facebooksíðu Spretts og á viðburðinum „Íslandsmót í hestaíþróttum“ sem stofnuð hefur verið. Einnig verður gefið út kort um aðkomur að svæðinu og hvar hvaða viðburðir fara fram.
Hlökkum til að sjá ykkur öll hjá Spretti í júlí.