Hið stórskemmtilega Metamót Spretts fer fram á Samskipavellinum 6.-8. september.
Á mótinu verður boðið upp á opinn flokk og áhugamannaflokk.
Keppt verður í A- og B-flokki gæðinga á beinni braut (ekki sýnt fet og stökk).
Einnig verður boðið uppá keppni í tölti.
Fyrirtækjatöltið verður á sínum stað.
Að sjálfsögðu verða skeiðkappreiðar að venju og keppt verður í 100m fljúgandi ljósaskeiði, 150m skeiði og 250m skeiði.
Aldurstakmark er í keppni á mótinu og miðast þátttökuréttur við ungmennaflokk.
Skráning verður auglýst þegar nær dregur móti.
Hlökkum til að sjá sem flesta á síðasta móti sumarsins.
Nefndin