Metamót Spretts 2020

Hið stórskemmtilega Metamót Spretts fer fram á Samskipavellinum 3.-6. september.

Á mótinu verður keppt í A- og B-flokki gæðinga á beinni braut(ekki sýnt fet og stökk). Boðið verður upp á opinn flokk og áhugamannaflokk. Einnig verður boðið upp á keppni í tölti T3, 1.flokki og 2.flokki.

Fyrirtækjatöltið verður á sínum stað.
Að sjálfsögðu verða skeiðkappreiðar að venju og keppt verður í 100m fljúgandi ljósaskeiði, 150m skeiði og 250m skeiði.
Aldurstakmark er í keppni á mótinu og miðast þátttökuréttur við ungmennaflokk.

Frítt streymi verður frá mótinu í gegnum www.alendis.tv

Skráning fer fram í gegnum Sportfeng

Scroll to Top