Lydía Þorgeirsdóttir, Sprettari, lauk nýverið námi sínu við hestafræðideild Háskólans á Hólum og útskrifaðist sem reiðkennari, tamningamaður og þjálfari.
Lydía gerði sér lítið fyrir og stóð efst á verklegu reiðmennskuprófi og hlaut þar með Reiðmennskuverðlaun Félags Tamningamanna.
Lydía er uppalin í Andvara og síðar meir í Spretti. Hún er félagsmönnum að góðu kunn og þekkt fyrir prúða og hógværa framkomu.
Við óskum Lydíu „okkar“ innilega til hamingju með árangurinn!