Lokadagur skráningar á WR íþróttamót Spretts

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á opna World Ranking íþróttamót Spretts sem haldið verður næstu helgi. Skráning er til miðnættis í kvöld þriðjudaginn 13. maí.

Keppt verður í eftirtöldum flokkum og greinum:

Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Tölt T1 – Tölt T2 – Fimmgangur F1 – Gæðingaskeið

1.flokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2- Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið

2.flokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið

Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið

Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2- Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið

Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T7

100m skeið – 150m skeið – 250m skeið

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef það næst ekki nægileg þátttaka
Skráningargjöld eru 5.000 kr í öllum flokkum nema í barna og unglingaflokkum sem og skeiðgreinum ( 250m, 150m, og 100m ) sem þau eru 4000 kr

Scroll to Top