Lokadagur skráningar á Opna Íþróttamót Spretts 2016

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á opna íþróttamót Spretts sem haldið verður um helgina 21.-22. maí. Skráning er til miðnættis í kvöld þriðjudaginn 17. maí. Skráningin fer fram í gegnum www.sportfengur.com. ATH Senda ÞARF staðfestingarpóst á sk******@sp********.is ef millifært.
 

Keppt verður í eftirtöldum flokkum og greinum:
Eftirfarandi greinar verða í boði:
Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T7
Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7
Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið
2. Flokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Tölt T7 – Gæðingaskeið
1. Flokkur: Fjórgangur V2 – Fimmgangur F2 – Tölt T3 – Tölt T4 – Gæðingaskeið
Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Fimmgangur F1 – Tölt T1 – Tölt T2 – Gæðingaskeið
Kappskeiðreiðar: 100m skeið

*Athugið T4 skráist sem T2 í sportfeng nema í meistaraflokki*

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef það næst ekki nægileg þátttaka
Skráningargjöld eru 5.000 kr í öllum flokkum nema í barna og unglingaflokkum og eru þau 3.500 kr en skeiðgreinar (100m ) 3.000 kr.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Scroll to Top