Skip to content

Litlu- jólin hjá ungum Spretturum! 

Jólagleðskapur ungra Sprettara verður haldinn þriðjudaginn 10.desember í veislusal Spretts milli kl.18-20 ????

Boðið verður upp á heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur, spiluð verður jólatónlist, það verður jólabíómynd á skjávarpanum og allskonar spil sem hægt verður að spila. Velkomið er að taka með sér piparkökur og glassúr til skreytinga. Rúsínan í pylsuendanum verður svo pakkaleikurinn ???? Hver og einn kemur með einn lítinn pakka. Pakkinn má alls ekki kosta meira en 2000kr og keppast á um að finna fyndna/fallega/hugljúfa gjöf fyrir eins lítinn pening og hægt er ???? Gjöfin getur verið hvað sem er t.d. faxteygjur í poka, smákökur í poka, spil, kerti o.s.frv. ???? Leikurinn er aðalatriðið, ekki gjöfin. Vonumst til að sjá sem flesta ⛄️ Engin skráning, bara mæta – og endilega í jólapeysum og/eða með jólasveinahúfu ????????