LÍFStöltið til styrktar LÍFI

Skráningarfrestur á LÍFStöltið sem fer fram á fimmtudaginn 24. apríl, rennur út klukkan 20.00 í kvöld. Engin ástæða til að bíða fram á síðustu stundu með að skrá sig!

Happdrættið er orðið eitt það svakalegasta í manna minnum, þvílíkir vinningar, folatollar, spænir og handsnyrting svo eitthvað sé nefnt!

Aðstandendur og leikarar úr HROSS Í OSS stýra hinni geysivinsælu brjóstamjólkurreið.

Þetta verður frábær dagur, allt í þágu LÍFS!

Skráning á Sportfeng, skráningargjald er 3500 krónur. Aldurstakmark er 13 ár, miðast við unglingaflokk. Breytingar og afskráningar tilkynnist á netfangið ho****@ho****.is eða í síma 824 7059, Margrét.

http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add

Boðið er upp á fjóra keppnisflokka á mótinu:

Byrjendaflokk (skráður sem Annað í Sportfeng), Minna vanar, Meira vanar og Opinn flokk.

Í byrjendaflokki er sýnt hægt tölt og svo tölt á frjálsum hraða, ekkert snúið við. Í hinum flokkunum þremur er sýnt hægt tölt, snúið við, sýnt tölt með hraðabreytingum og svo greitt tölt. Tveir til þrír knapar inni á vellinum í einu og þulur stýrir.

Hlökkum til að sjá allar konur tölta til styrktar LÍFI!

lifsto ltid plagatid-nytt
Scroll to Top