Líflandsmót Fáks

Líflandsmót Fáks verður haldið 26. og 27. apríl. Þar sem mótið hefur stækkað frá ári til árs verður það í fyrsta skipti á tveimur dögum. Búið er að bæta við tveimur keppnisgreinum en þær eru fimi og slaktaumatölt.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Pollaflokkur (teymdir/ríða sjálfir)
  • Barnaflokkur (t7, tölt, fjórgangur, fimi og slaktaumatölt)
  • Unglingaflokkur (tölt, fjórgangur, fimmgangur, fimi og slaktaumatölt)
  • Ungmennaflokkur (tölt, fjórgangur, fimmgangur, fimi og slaktaumatölt)

Skráningargjöld eru aðeins 1.800 kr á hverja skráningu en skráning verður frá miðnætti 21. og fram að miðnætti 23. apríl á www.sportfengur.com.

Nánari upplýsingar um mótið, dagskrá, ráslistar ofl verða birt á fakur.is.

Vegleg þátttökuverðlaun frá Líflandi!

Við hvetjum alla til þess að taka þátt í þessu skemmtilega móti 🙂

F.h. Æskulýðsnefndar Fáks

fakur
Scroll to Top