Mánudaginn 22. júní verður knapafundur fyrir Landsmótsfara í yngri flokkum Spretts haldinn í veislusalnum í Samskipahöllinni. Fundurinn hefst kl.18:00 og er gert ráð fyrir ca. 30 mín.
Fundurinn er ætlaður fyrir þá keppendur í barna-, unglinga- og ungmennaflokki sem hafa unnið sér inn þátttökurétt á Landsmóti hestamanna 2026. Foreldrar eru velkomnir með.
Rætt verður stuttlega um keppni á landsmóti, hvernig sérstök forkeppni virkar, farið verður yfir félagsbúning Spretts og sitthvað fleira.
Mikilvægt er að senda inn staðfestingu á motaskraning(hja)sprettur.is um þátttöku og staðfesta val á hesti í yngri flokkum ef fleiri en einn hestur hefur náð inn og staðfesta upp á hvora hönd skal ríða.
Ef knapar í yngri flokkum þurfa hesthúsapláss á LM þarf einnig að óska eftir því samhliða staðfestingu um þátttöku.
