Lagabreytingar og framboðsfrestur

Líkt og áður hefur komið fram var aðalfundi félagsins frestað þar sem gera þarf lagabreytingar á aðalfundi vegna umsóknar félagsins í fyrirmyndarfélag ISI.

Aðalfundur Spretts fer fram 24. mars kl 20:00.

Þar sem fresta þurfti fundi vill stjórn jafnframt vekja athygli á því að enn er tekið við framboðum í stjórn félagsins eða til klukkan 20:00 þann 17. mars (stjorn(hja)sprettur.is) þar sem lög félagsins kveða á um að framboð til stjórnarsetu skal skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en viku fyrir aðalfund.

Stjórn Spretts

Scroll to Top