Lagabreytingar fyrir aðalfund 24. mars

Tillögur til lagabreytinga sem leggja skal fyrir aðalfund Spretts 24. mars 2025

 

Tillögur frá stjórn í kjölfar yfirferðar ÍSÍ yfir lög Spretts.

 

  • Í 1.mgr. 2. gr.: Í stað „[…] efla áhuga á hestum og hestaíþróttum […]“ komi „„[…] efla áhuga á hestum og iðkun hestaíþrótta […]“.
  • Í stað núverndi 3. gr. komi ný grein 3: „Félagar geta allir orðið sem þess óska og hafa áhuga á hestum og eru reiðubúnir til að hlíta lögum og reglum félagsins. Beiðni um inngöngu í félagið skal senda stjórn þess, og skal þar greina frá nafni, kennitölu, heimilisfangi og netfang, sé þess kostur. Öðlast umsækjandi full félagsréttindi þegar stjórn félagsins hefur afgreitt umsóknina og þegar umsækjandi hefur greitt félagsgjald yfirstandandi starfsárs.“

Skýring: Í stað þess að rætt sé um að stjórn „taki afstöðu til“ umsóknar – er skilyrði að senda tilteknar upplýsingar og greiða félagsgjald.

 

  • Í 1. málslið 1. mgr. 5. gr.: Í stað „[…] hafi greitt skuld sína. […]“ komi „[…] hafi greitt skuld sína við félagið. […]“.
  • Í 3. málslið 1. 5. gr.: Í stað „[…] ekki öðlast félagsréttindi á ný nema eldri skuld sé greidd. […]“ komi „[…] ekki öðlast félagsréttindi á ný nema eldri skuld við félagið sé greidd. […]“.
  • Í 8. málsl. 6. gr.: Í stað „[…] til að endurskoða reikninga félagsins. […]“ kemur „[…] til að skoða reikninga félagsins[…]“.
  • Að 7. málsl. 7. gr. verði felld niður: „Við innheimtu félagsgjalda er gjaldkera heimilt að ráða sér til aðstoðar aðra félagsmenn, enda beri hann ábyrgð á því.
  • Í 4. málsl. 3 mgr. 9. gr.: Í stað „[…] yngri en 18 ára hafa ekki kosningarétt eða kjörgengi.“ kemur „[…] yngri en 18 ára hafa ekki kosningarétt eða kjörgengi. “.
  • Í 4 tölul. 2. mgr. 10. gr.: Í stað „[…] endurskoðaða reikninga félagsins […]“ komi „[…] skoðaða reikninga félagins […]“.
  • Í 14. gr.: Í stað „[…] Landsambands hestamanna (L.H.).“ komi „[…] Landssambands hestamannafélaga (L.H.).“
  • Í 2. málsl. 21. gr.: Í stað „[…] Að öðrum kosti skal boða til nýs fundar […]“ kemur „[…] Mæti of fáir skal boða til nýs fundar […]“.
Scroll to Top