Á morgun, mánudaginn 10. júní hefst kynbótasýning í Spretti. Sýningin er rúmlega fullbókuð og von er á mörgum glæsilegum gæðingum í braut í vikunni.
Stjórn Spretts hefur fengið til liðs við sig einvala lið Sprettara til að aðstoða við undirbúning og rennsli á sýningunni. Í vikunni sem leið er búið að laga til og þrífa í rennunni, í Gaukshreiðrinu og á kaffistofunni á 2. hæð. Öll aðstaða til mælinga og byggingardóms lítur svakalega vel út. Kynbótavöllurinn er líka í toppstandi en Bjössi og Haukur hafa séð um að græja völlinn fyrir sýninguna. Haukur hefur jafnframt tekið að sér hlutverk vallarstjóra á sýningunni. Eins og áður kom fram leitaði stjórn til Erlu Guðnýjar um að halda utan um framkvæmd kynbótasýninganna.
![](https://sprettur.is/storage/2024/06/IMG_9001-1024x863.jpg)
![](https://sprettur.is/storage/2024/06/IMG_9002-1024x576.jpg)
Vakin er athygli á því að búið er að draga út eitt tjald, á milli bila, í Samskipahöllinni. Þetta er gert til að hafa ljósan bakgrunn þar sem hross eru byggingardæmd. Fremsta bilið, næst rennunni, verður lokað frá mánudegi og þar til byggingardómum lýkur á fimmtudag. Á meðan byggingardómar eru í gangi er öll höllin lokuð, en bil 2 og 3 eru opin á meðan reiðdómar eru í gangi. Nánara skipulag má finna á reiðhallardagatalinu inná sprettur.is. Við biðjum knapa að fara varlega við hvíta tjaldið sem aðskilur bilin og ekki ríða alveg upp að því.
![](https://sprettur.is/storage/2024/06/IMG_9003-1024x576.jpg)
Við hvetjum Sprettara til að koma og fylgjast með dómum og kíkja hversu fínt er orðið hjá okkur. Það verður kaffi í boði Spretts í rennunni fyrir starfsfólk, knapa og gesti.
Sýningunni verður útvarpað á 106,1.