Skip to content

Kvennatölt spretts 22. apríl 2023

Búið er að opna fyrir skráningu í Kvennatölt Spretts og Mercedes-Benz sem fer fram í
Samskipahöllinni í Spretti laugardaginn 22.apríl
Nánari upplýsingar um flokkaskiptingu og reglur er að finna á viðburði á Facebook undir nafninu
Kvennatölt Spretts og Mercedes-Benz 2023
Endilega meldið ykkur inn á viðburðinn til að fylgjast með upplýsingum.
Skráningargjald er kr. 6000 kr per skráningu og fer skráning fram á
https://skraning.sportfengur.com/
ATH aldurstakmark er 18 ár
Ath. þær konur sem ætla að skrá í T7 4.flokk-byrjendur skrá sig í flokk sem heitir
Fullorðinsflokkur inn í Sportfeng.
Skráningu líkur þriðjudaginn 18.apríl. Þær sem vilja fá að skrá sig eftir að skráningu lýkur verða
að borga 5000 kr aukalega
Konur eru hvattar til að skrá sem fyrst, en dregið verður úr fyrstu 50 og fyrstu 100 skráningunum
þar sem heppnar konur hljóta flotta vinninga.
Ef einhver lendir í vandræðum með skráningu þá viljum við fá skilaboð á netfangið
kvennatolt@sprettarar.is eða að þið hringið í 6952391.
Boðið verður upp á æfingartíma í Samskipahöllinni þriðjudaginn 18.apríl frá kl.18:00 – 22:00 og
fimmtudaginn 20.apríl. frá kl.16:00 – 20:00
Stefnt er á að mótið hefjist kl. 10:00, með forkeppni og mótslok verði um kl. 19:00
Kvennatöltsnefnd Spretts