Kórreið Sprettskórsins laugardaginn 9. maí 2026

Hittumst við Samskipahöllina. Ríðum þaðan kl. 12, til áningar rétt vestan við Gjárétt, tökum þar lagið og vætum kverkarnar, sé þörf á.
Svalandi drykkir í boði, gegn hæfilegu gjaldi (posi ekki með vegna lélegs símasambands).

Frá Gjárétt ríðum við svo til baka eftir drykklanga stund eftir krákustígum Heiðmerkur að eigin vali að upphafsreit.

Eftir að við höfum gengið frá hestum (áætlað milli kl. 15 og 16) bíður okkar hamborgaraveisla og október-stemning í „Rennunni“ í N-A horni Samskipahallarinnar. Fjöldasöngur með undirspili. Posi á staðnum.

Sjáumst hress.
Sprettskórinn.

Scroll to Top