Knapaþjálfun með Bergrúnu! Við minnum á helgarnámskeiðið “Knapaþjálfun með Bergrúnu” sem fer fram 25.-26.janúar nk. Skráning er í fullum gangi og nokkur laus pláss. Nú er einnig hægt að bóka sig eingöngu í reiðtíma hjá henni þessa helgi, en sleppa fyrirlestri og æfingum.
Hér er beinn hlekkur á skráningu:
https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzYxMTU=
Hér eru svo nánari upplýsingar um námskeiðið í heild sinni:
Helgarnámskeiðin er hugsuð þannig að nemandinn fái sem flest “verkfæri” til að bæta líkamsbeitingu sína, bæði á hestbaki en líka í gegnum æfingar/ æfingatækni sem hægt er að nota heima og/eða í ræktinni.
Námskeiðið er sett þannig upp að það byrjar á fyrirlestri, sem er um klukkustundar langur.
Hver knapi fer í svokallaða líkamsstöðugreiningu þar sem viðkomandi er skoðaður án hests. Horft er í líkamsstöðu, vöðvasamræmi knapa, hreyfifærni liða og annað sem getur mögulega haft áhrif á ásetu knapa og líkamsstöðu dags daglega.
Þessu eru svo hvoru tveggja fylgt eftir með tveimur reiðtímum – einkatímum, sem er hvor fyrir sig um 40mín. Þar sem áherslan er líkamsbeyting knapans og stjórn hans á hestinum.
Að auki er einn laufléttur æfingartími, ca 45 mín., þar sem farið er í styrktarþjálfun og teygjur sem mér finnst eiga erindi við alla knapa. Farið í æfingatækni sem getur nýst viðkomandi í ræktinni eða við hreyfingu dags daglega.
Fjöldi nemenda á einu námskeiði miðast við 8-10 knapa. Námskeiðið hentar öllum knöpum, allt frá byrjendum til afreksknapa.