Skip to content

Knapaþjálfun með Bergrúnu

Námskeiðið er sett þannig upp að það byrjar á fyrirlestri, sem er um klukkustundar langur á föstudagskvöldi.

Hver knapi fer í svokallaða líkamsstöðugreiningu þar sem viðkomandi er skoðaður án hests, einnig á föstudagskvöldi. Horft er í líkamsstöðu, vöðvasamræmi knapa, hreyfifærni liða og annað sem getur mögulega haft áhrif á ásetu knapa og líkamsstöðu dags daglega.

Þessu eru svo hvoru tveggja fylgt eftir með tveimur reiðtímum – einkatímum, sem er hvor fyrir sig um 40mín., kenndir á laugardegi og sunnudegi. Þar sem áherslan er líkamsbeitingu knapans og stjórn hans á hestinum.

Að auki er einn laufléttur æfingartími, ca 45 mín., á sunnudagsmorgni, þar sem farið er í styrktarþjálfun og teygjur sem eiga erindi við alla knapa. Farið í æfingatækni sem getur nýst viðkomandi í ræktinni eða við hreyfingu dags daglega.

Fjöldi nemenda á einu námskeiði miðast við 8-10 knapa. Námskeiðið hentar öllum knöpum, allt frá byrjendum til afreksknapa.

Verð fyrir fullorðna er 31.000kr.

Ungir sem aldnir eru hvattir til að skrá sig, verð fyrir knapa í yngri flokkum er 26.000kr. Best er að hafa samband við [email protected] til að bóka tíma og greiða fyrir námskeiðið.

Skráning opener kl.12:00 mánudaginn 23.des. og fer fram á sportabler. Beinn hlekkur á skráningu hér: https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzYxMTU=