Kidka

Lið KIDKA er skipað hestamönnum úr Húnaþingi vestra sem öll eru félagar í Hestamannafélaginu Þyt. KIDKA er framleiðslufyrirtæki fyrir prjónavörur og framleiðir sína eigin vörulínu úr íslenskri ull. Vörumerkið stendur fyrir fallegar og þægilegar hágæða ullarvörur sem fylgja alltaf nýjustu tískustraumum. Framleiðslan fer eingöngu fram á Íslandi. Vörurnar frá KIDKA er að finna í verslunum um land allt. Verksmiðjan er staðsett á Hvammstanga. KIDKA framleiðir talsvert af vörum fyrir hesta og hestamenn. Ullarábreiður fyrir hesta með og án hálskraga, undirdýnur undir hnakka og hnakkahlífar.  Að ógleymdum peysum, húfum og fleira sem nýtist íslenskum hestamönnum. Eigendur fyrirtækisins eru Irina Kamp og Kristinn Karlsson. www.kidka.com.

Sverrir Sigurðsson

Sverrir Sigurðsson

Aldur: 61
Starf: Sjálfstætt starfandi
Hestamannafélag: Þytur

Kolbrún Grétarsdóttir

Kolbrún Grétarsdóttir

Aldur: 52
Starf: Ferðaþjónustubóndi
Hestamannafélag: Þytur/Snæfellingur

Jóhann Albertsson

Jóhann Albertsson

Aldur: 63
Starf: Ferðaþjónustubóndi
Hestamannafélag: Þytur

Pálmi Geir Ríkharðsson

Pálmi Geir Ríkharðsson

Aldur: 56
Starf: Grunnskólakennari/Bóndi
Hestamannafélag: Þytur

Halldór P. Sigurðsson

Halldór P. Sigurðsson

Aldur: 67
Starf: Húsasmíðameistari
Hestamannafélag: Þytur

Hörður Óli Sæmundarson

Hörður Óli Sæmundarson

Þjálfari

 
Lið Kidka
Scroll to Top