Keppnisnámskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni

Keppnisnámskeið fyrir börn og unglinga annar vegar og ungmenni hins vegar.
Vegna mikilla anna í reiðhöllinni höfum við ákveðið að fresta keppnisnámskeiðinu um hálfan mánuð og hefst kennsla þann 28. febrúar á barna og unglinganámskeiði, en ungmenni degi seinna, þ.e. 1. mars.

Meginmarkmið námskeiðsins er að undirbúa knapa og hesta fyrir komandi keppnistímabil. Farið verður vel í ásetu og stjórnun knapa. Einnig verður lögð áhersla á að bæta hvern hest fyrir sig, sækja léttleika og góða svörun við ábendingum ásamt því að bæta gangtegundir. Bæði verður þjálfað inni og úti. Fyrripart vetrar inni og svo þegar líður á vorið verða líka æfingar úti á velli.

Kennari fyrir börn og unglinga er Ragnhildur Haraldsdóttir sem er útskrifaður reiðkennari frá Hólum auk þess að hafa getið sér gott orð í keppni og þjálfun.

Kennari fyrir ungmenni er Þórarinn Ragnarsson sem er einnig útskrifaður reiðkennari frá Hólum auk þess að hafa sigrað A-flokk á Landsmóti sem og vera gæðingaknapi ársins 2014.

Börn og unglingar verða á þriðjudögum og kennt verður á milli 17:00 og 21:00 í Samskipahöllinni í hólfi 3 en ungmenni verða á miðvikudögum og einnig kennt á milli 17:00 og 21:00 í Samskipahöllinni hólf 2.

Kennt verður í 8 vikur og má búast við því að annað námskeið verði sett á í kjölfarið.

Fræðslunefnd áskilur sér þann rétt að fella niður námskeiðið náist ekki lágmarksfjöldi.

Skráning fer fram á www.sportfengur.com og er skráningarfrestur til 25. febrúar

Verð á einstakling: 44.000 kr.

Image may contain: 3 people, horse and outdoor

Scroll to Top