Opið Karlatölt Spretts verður haldið föstudaginn 27.mars í Sprettshöllinni.
Þrír flokkar verða í boði og er aldurstakmark 18 ár
( miðast við ungmennaflokk);
– Minna vanir (hægt tölt og fegurðartölt)
– Meira vanir (hægt tölt, hraðabreytingar og greitt tölt)
– Opinn flokkur (hægt tölt, hraðabreytingar og greitt tölt)
Aðeins er hægt að skrá í gegnum skráningakerfið www.sportfengur.com.
Skráning hefst föstudaginn 20.mars og lýkur miðvikudaginn 25. mars
kl. 20:00. Skráning pr. hest er 4000 kr.
Leyfilegt er að skrá fleiri en einn hest.
Stórglæsileg verðlaun í boði, peningaverðlaun, folatollar ofl.