Kári Sveinbjörnsson Íslandsmeistari!

Íslandsmót barna og unglinga var haldið á Brávöllum á Selfossi á félagssvæði hestamannafélagsins Sleipnis dagana 22.-25.júlí sl.
Fjölmargir ungir Sprettarar mættu til leiks og áttu stórgóðar sýningar.
Fyrstan ber að nefna Kára Sveinbjörnsson sem varð Íslandsmeistari í slaktaumatölti unglinga á hesti sínum Gígjari frá Bakkakoti. Innilega til hamingju Kári með Íslandsmeistara titilinn!
Hilmir Páll Hannesson varð þriðji í slaktaumatölti unglinga á Goða frá Oddgeirshólum og Apríl Björk endaði í 9.sæti á Sikli frá Árbæjarhjáleigu II.
Í tölti unglinga varð Apríl Björk Þórisdóttir í 2.sæti á Lilju frá Kvistum og Kristín Rut Jónsdóttir varð í 10.sæti á Straumi frá Hofsstöðum, Garðabæ.
Í fjórgangi unglinga varð Kristín Rut Jónsdóttir í 2-3.sæti á Goða frá Garðabæ, Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir varð í 5.sæti á Radíus frá Hofsstöðum og Ragnar Dagur Jóhannsson varð í 8.sæti á Eiðfaxa frá Lækjarbotnum.
Í fimmgangi unglinga varð Apríl Björk í 3.sæti á Esju frá Miðsitju og Ragnar Dagur Jóhannsson varð í 9.sæti á Öx frá Hvammi.
Í slaktaumatölti í barnaflokki varð Eyvör Sveinbjörnsdóttir í 3.sæti á Hag frá Hofi á Höfðaströnd og þau urðu einnig í 8.sæti í fjórgangi barna.
Í gæðingatölti unglingaflokki varð Hilmir Páll Hannesson og Heiður frá Eystra-Fróðholti í 2.sæti og Kristín Rut Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ í því 3. Ragnar Dagur Jóhannsson varð í 8.sæti á Eiðfaxa frá Lækjarbotnum.
Í unglingaflokki (gæðingakeppni) varð Hilmir Páll Hannesson og Grímur frá Skógarási í 3.sæti og Hrefna Kristín Ómarsdóttir varð í 16.sæti í B-úrslitum.
Fjölmargir ungir Sprettarar voru að keppa í fyrsta sinn á Íslandsmóti og öðlast þar með gríðarlega reynslu sem gott er að hafa í reynslubankanum. Ungir Sprettarar komu vel fyrir og áttu stórgóðar sýningar. Innilega til hamingju allir ungir Sprettarar með góðan árangur.
Hópur ungra Sprettarar sem tók þátt á Íslandsmóti barna og unglinga 2026:
Apríl Björk Þórisdóttir
Birkir Snær Sigurðsson
Elena Ást Einarsdóttir
Elisa Rún Karlsdóttir
Eyvör Sveinbjörnsdóttir
Harpa Rún Sveinbjörnsdóttir
Hilmir Páll Hannesson
Hrefna Kristín Ómarsdóttir
Ingunn Lilja Gautadóttir
Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir
Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir
Kristín Rut Jónsdóttir
Kári Sveinbjörnsson
Lilja Guðrún Gunnarsdóttir
Ómar Björn Valdimarsson
Ragnar Dagur Jóhannsson
Sigursteinn Ingi Jóhannsson
Saga Hannesdóttir (tók þátt í pollatölti)
Scroll to Top