Hrossaræktarfundir – fundarferð um landið

Fundir um málefni hrossaræktarinnar hófust í síðustu viku fyrir norðan en í kvöld er fundur í Reykjavík – reiðhöllinni í Víðidal og byrjar kl. 20:00. Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur verða á ferðinni um landið og kynna það sem er efst á baugi. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:

– Þróun ræktunarmarkmiðs í hrossarækt
– Dómskalinn – þróun og betrumbætur
– Nýjir vægistuðlar eiginleikanna
– Málefni Félags hrossabænda

Eins og sjá má verður margt áhugavert tekið til umræðu.
Fundirnir verða haldnir um allt land en þeir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

20. febrúar miðvikudagur Akureyri – Reiðhöllin á Akureyri kl. 20:00.

21. febrúar fimmtudagur Skagafjörður – Tjarnarbær kl. 20:00.

22. febrúar föstudagur Vestur-Húnavatnssýsla – Gauksmýri kl. 20:00.  


25. febrúar mánudagur Reykjavík – Reiðhöllin í Víðidal kl. 20:00.


27. febrúar miðvikudagur Borgarnes – félagsheimili Borgfirðings kl. 20:30.


1. mars föstudagur Höfn í Hornafirði – Fornustekkar kl. 20:00.


2. mars laugardagur Austurland – Iðavellir kl. 14:00.


4. mars mánudagur Suðurland – reiðhöllin á Hellu kl. 20:00.

Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.

Scroll to Top