Hrossarækt 2015

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs fer fram í Samskipahöllinni í Spretti, laugardaginn 7. nóvember. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er sérstaklega hvatt til að mæta. Sérstök athygli er vakin á afar spennandi erindi er varðar markaðssetningu íslenska hestsins sem Guðný Káradóttir frá Íslandsstofu flytur.

Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:

Laugardagur 7. nóvember 2015

  • 13:00 Setning – Sveinn Steinarsson formaður fagráðs og FHB
  • 13:10 Hrossaræktarárið 2015 – Niðurstöður kynbótamats og fl. Þorvaldur Kristjánsson
  • 13:30 Heiðursverðlaunahryssa fyrir afkvæmi 2015
  • 13:45 Verðlaunaveitingar
  • -Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins (aldursleiðrétt)
  • -Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
  • -Verðlaun, hæsta litförótta hryssa ársins
  • 14:10 Viðurkenningar fyrir ræktunarmann/menn ársins 2015
  • 14:30 Erindi um markaðssetningu íslenska hestsins – Guðný Káradóttir frá Íslandsstofu
  • 15:30 Kaffihlé
  • 15:45 Umræður

Allir velkomnir!

Scroll to Top