Hreinsunardagur Spretts verður haldinn miðvikudaginn 22.apríl kl 17
Hittumst við Samskipahöllina, þar sem við verðum með einhver áhöld og poka. Þú mátt endilega mæta með hanska, verkfæri og góða skapið !
🌱 Tökum höndum saman og hreinsum til og fegrum svæðið okkar fyrir sumarið.
Gámarnir verða staðsettir á heyplaninu Andvaramegin og einnig sunnan við Samskipahöllina.
🌭við munum grilla pylsur á eftir – allir velkomnir!
– Skemmtileg stemning, samvera og eitthvað gott í maga eftir vinnuna.
– Frábært tækifæri fyrir félagsmenn til að hittast og spjalla.
Sprettsfélagar sameinumst um að gera svæðið okkar hreint og snyrtilegt – sjáumst!
