Skip to content

Hreinsunardagur Spretts 2023

Hreinsunardagur Spretts verður 19.apríl nk, daginn fyrir sumardaginn fyrsta.

Hreinsunardagurinn hefst kl. 17:00

Allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir að hjálpa til við að halda svæðinu okkar hreinu og snyrtilegu. Ruslapoka og áhöld verður hægt að nálgast við reiðhallir félagsins áður en hafist verður handa.

Ruslagámar verða bæði við Samskipahöllina og Húsasmiðjuhöllina.

Þeir sem eiga bagga eða rúllur á baggaplaninu eru sérstaklega beðnir um að mæta þangað og taka til, heilmikið af rusli hefur safnast á planinu í vetur.

Ekki er tekið við rusli úr hesthúsum.

Við ætlum líka að fara yfir girðingarstrengi meðfram reiðstígum, skipta út böndum og laga það sem þarf svo hægt sé að opna rekstarhringinn.

Vonumst til að sjá sem flesta, margar hendur vinna létt verk.