Hindrunarstökksnámskeið verður haldið í Spretti, Húsasmiðjuhöll, og verður kennt helgina 22. og 23. febrúar. Skemmtilegt helgarnámskeið þar sem knapar fá innsýn í hindrunarstökksþjálfun.
Námskeiðið er fyrir knapa í yngri flokkum sem hafa áhuga á hindrunarstökks- og brokkspíruþjálfun. Knapar þurfa að hafa grunnstjórn á hestum sínum.
Markmið námskeiðsins er að auka þor manns og hests með hindrunum, sem og auka þekkingu knapa á góðri hindranaþjálfun. Búnaður sem þarf á hestinn: hnakkur, beisli, hringtaumsmúll/tamningabeisli, langur taumur og hringtaumspískur.
Kennari er Guðrún Margrét Valsteinsdóttir, útskrifaður reiðkennari frá Hólaskóla.
Kennt verður í hópum, 3-4 í hverjum hóp, í Húsasmiðjuhöllinni. Einn tími á laugardag og einn tími á sunnudag, hvor um sig 45mín. Verð er 9.500kr. Skráning er opin og fer fram á abler.
Hér er beinn hlekkur á skráningu; https://www.abler.io/…/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6Mzc3Njk=
Nánari upplýsingar [email protected]