Hindrunarstökksnámskeið verður haldið í Spretti, Húsasmiðjuhöll, og verður kennt á föstudögum.
Fyrsti tíminn er föstudaginn 29. nóvember. Síðasti tíminn föstudaginn 13. desember. Samtals 3 skipti. Hugmynd er að bjóða upp á skemmtilega keppni í hindrunarstökki föstudaginn 20. desember.
Námskeiðið er fyrir knapa í yngri flokkum sem hafa áhuga á hindrunarstökks- og brokkspíruþjálfun. Knapar þurfa að hafa grunnstjórn á hestum sínum.
Markmið námskeiðsins er að auka þor manns og hests með hindrunum, sem og auka þekkingu knapa á góðri hindranaþjálfun. Búnaður sem þarf á hestinn: hnakkur, beisli, hringtaumsmúll/tamningabeisli, langur taumur og hringtaumspískur.
Kennari er Guðrún Margrét Valsteinsdóttir, útskrifaður reiðkennari frá Hólaskóla.
Kennt verður í hópum, 3-4 í hverjum hóp, í Húsasmiðjuhöllinni á föstudögum, tvær tímasetningar eru í boði, kl.17:30-18:15 og kl.18:15-19:00. Skráning er opin og fer fram á sportabler.com Hér er beinn hlekkur á skráninguna: https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MzQ3Njk=?
Nánari upplýsingar á [email protected]