Skip to content

Hindrunarstökksnámskeið

Vinsælu hindrunarstökksnámskeiðin verða áfram í boði í haust og vetur í Spretti. Námskeiðið er fyrir knapa í yngri flokkum, 10-21 árs, sem hafa áhuga á hindrunarstökks- og brokkspíruþjálfun. Stefnt verður að því að búa til sýningarhóp fyrir þá sem hafa áhuga á því. Námskeiðið verður haldið í Húsasmiðjuhöll og verður kennt á miðvikudögum. Virkilega skemmtilegt námskeið þar sem markmið námskeiðsins er að auka þor manns og hests með hindrunum sem og að auka þekkingu knapa á góðri hindranaþjálfun. Knapar þurfa að hafa grunnstjórn á hestum sínum.
Búnaður sem þarf á hestinn: hnakkur, beisli, hringtaumsmúll/tamningabeisli, langur taumur og hringtaumspískur.
Fyrsti tíminn er 15.nóv kl.18-19. Samtals 5 skipti.
Kennt verður í hópum, 4 í hverjum hóp, í Húsasmiðjuhöllinni á miðvikudögum, tímasetningar eru aðeins breytilegar en eru sem hér segir:
15.nóv kl.18-19
22.nóv kl.18-19
29.nóv kl.17-18
6.des kl.17-18
13.des kl.17-18

Kennari er Guðrún Margrét Valsteinsdóttir.
Verð fyrir fyrir yngri flokka er 14.500kr.
Skráning fer fram á sportabler;