Heyefnagreining á sunnudag í Spretti

Til félaga í Hestamannafélaginu Sprett

Við bjóðum uppá heyefnagreiningar fyrir hestamenn. Tvennskonar, minni greining kostar 6.080.- kr án vsk og stærri greining kostar 12.239.- kr án vsk . Minni greiningin er með orkuefnagreiningum (Meltanleiki, prótein, tréni, sykur, hestafóðureiningar) og útreikningum á heygjöf á dag pr hest útfrá ykkar heyi. Í stærri greiningunni bætist við helstu stein- og snefilefni.

Þið setjið heyið í poka (100-200 gr hvert sýni) fer eftir hversu þurrt heyið er. Merkið með nafni, heimilisfangi, kt og tölvupóstfangi .

Ég kem til ykkar á sunnudaginn 8. febrúar kl. 13.30 og verð í hesthúsinu hjá Nínu Maríu og Guðrúnu Elínu Fluguvöllum 4 að taka við heysýnunum til klukkan 14:30.

Ef ykkur vantar nánari upplýsingar þá er síminn hjá mér 6612629 og tölvupóstfang be**@**********ng.is

Scroll to Top