Hesthúsapláss Spretts á LM2026

Hestamannafélagið Sprettur hefur fengið úthlutað hesthúsaplássum í Skagafirði vegna Landsmóts hestamanna 2026. Við höfum fengið lánað hesthús Fjölbrautaskólans FNV og einnig hefur Sprettarinn Sæunn Kolbrún og fjölskylda boðið okkur hesthúsapláss á Hjaltastöðum í Skagafirði. Stofnaðar verða spjallgrúbbur á fb með þeim sem óskað hafa eftir plássi og þar verða settar inn nánari upplýsingar. Sprettur útvegar hey, 1-2 rúllur, á hvorn stað. Hver og einn þarf að koma með sinn spæni. Mælt er með því að taka með sér plaststaura, band og jafnvel litla rafstöð svo hægt sé að girða beitarhólf fyrir hrossin.

Þau sem sótt hafa um pláss til Spretts hefur verið raðað niður í hesthús.

Sauðárkrókur:
Hannes Sigurjónsson og Inga Campos 4 pláss
Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Petra Mogensen 3 pláss
Auður Stefánsdóttir og Hermann Arason 2 pláss
Rafn Alexander (Svanheiður Lóa) 1 pláss

Hjaltastaðir:
Erla Magnúsdóttir 2 pláss
Atli Rúnar Bjarnason 1 pláss
Erla Guðný Gylfadóttir 3 pláss
Sigurður Halldórsson 3 pláss
Berglind Guðmundsdóttir 1 pláss
Karl Sigfússon 1 pláss
Erla Dís 1 pláss
Jóhanna Dýrleif 1 pláss
Helga Katrín 1 plass

Allar nánari upplýsingar má finna hjá thordis(hja)sprettur.is og berglind(hja)sprettur.is

 

Scroll to Top