Þann 10.okt nk. munum við hefja námskeið í Hestamennsku III og Hestamennsku V.
Námskeiðin eru sjálfstætt framhald af Hestamennsku I – II – III og IV, sem haldin hafa verið undanfarin ár. Námskeiðin eru opin fyrir öll börn og unglinga sem eru vel reiðfær, lágmarksaldur er 8 ár.
Til að byrja með verður kennt 1x í viku án hests, en verður svo fljótlega aukið í 2x viku þegar verkleg kennsla hefst með hesti. Kennt verður á mánudögum, til að byrja með, og svo munu fimmtudagar bætast við. Kennt verður í Samskipahöllinni. Líkleg tímasetning er kl.17 eða 18 (fer eftir fjölda).
Við munum m.a. fara í heimsóknir, fjalla m.a. um mismunandi keppnisgreinar, gangtegundir, ásetu, stjórnun, fimiæfingar, fóðrun og hirðingu auk verklegrar reiðkennslu þar sem sérstök áhersla verður lögð á TREK þjálfun. Námskeiðið mun svo enda á TREK-móti.
Nemendur þurfa að mæta með sinn hest frá og með 14.nóvember.
Ef börn/unglingar hafa ekki aðgang að hesti/hesthúsaplássi munu reiðkennarar reyna eftir fremsta megni að aðstoða þau við að útvega sér hesti/hesthúsaplássi. Við mælum með því að foreldrar sameinist um hesthús svo utanumhald og hirðingar verði léttari. Það er líka mun skemmtilegra fyrir krakkana að vera nokkur saman í hesthúsi.
Drög að dagskrá:
10.okt mánud – án hests
17.okt mánud – án hests
24.okt mánud – án hests
31.okt mánud – án hests
7.nóv mánud – án hests
14. og 17.nóv – verkleg kennsla
21. og 24.nóv – verkleg kennsla
28. og 1.des – verkleg kennsla
5. og 8.des. – verkleg kennsla
12. og 15.des – verkleg kennsla
Samtals eru þetta 15 kennslustundir.
Skráning fer fram á www.sportfengur.com
Verð er kr. 32.000 kr
Hægt verður að nýta sér frístundastyrk til þess að greiða niður námskeiðsgjaldið.
Systkini fá 10% afslátt af námskeiðisgjaldi.
Allar nánari upplýsingar má finna hjá Sigrúnu s:896-1818 eða hjá Þórdísi s:868-7432