Boðið verður upp á námskeið fyrir börn og unglinga og er ætlað þeim sem vilja sækja almennt reiðnámskeið þar sem farið verður yfir undirstöðuatriði í reiðmennsku. Námskeiðið hentar einnig fyrir þau sem hafa sótt pollanámskeið og vilja stíga næsta skref í sinni reiðmennsku. Miðað er við að nemendur geti stjórnað sínum hesti sjálf og riðið á tölt/brokk hraða. Viðmiðunaraldur er 9 til 14 ára. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu.
Á námskeiðinu verður farið yfir ásetu, stjórnun, gangtegundir, allskonar æfingar og leiki. Markmiðið er að bæta sig og hestinn sinn og hafa gaman. Einnig verður farið yfir fyrstu skref í keppni fyrir þau sem eru lengra komin.
Kennsla hefst 30.janúar og verður kennt á fimmtudögum á tímabilinu kl.16:30-18:00. Kennt verður í Húsasmiðjuhöll. 4-5 saman í hóp. 6 skipti. Síðasti tíminn er kenndur 6.mars. Kennari er Þórdís Anna Gylfadóttir. Verð er 16.500kr. Skráning er opin og fer fram á sportabler.com/shop/hfsprettur
Hægt er að greiða með frístundastyrk/hvatapeningum